Þór Breiðfjörð – Sögur hjartans í Kaldalóni, Hörpu

Sögur hjartans

1. október 2026 kl. 20:00 · Kaldalón, Harpa

Persónulegir sólótónleikar þar sem Þór Breiðfjörð stendur einn á sviðinu með rödd, píanó og gítar. Ný lög og sögur um ást, minningar, missi, gleði og mannlega reynslu – lifandi og einlæg stund í Kaldalóni.

ÞÓR BREIÐFJÖRÐ

Þór Breiðfjörð er íslenskur söngvari, lagahöfundur, talsetjari og söngleikari. Hann var áður líka þekktur erlendis undir listamannanafninu Thor Kristinsson. Alþjóðleg tónlist hans á ensku kemur nú út undir nafninu Thor Breidfjord, en Þór Breiðfjörð er íslensk mynd nafnsins.

Á alþjóðlegum söngleikaferli sínum hefur Þór meðal annars farið með hlutverk Jean Valjean í Les Misérables. Hann hefur hlotið viðurkenningu á Grímunni fyrir störf sín í leikhúsi. Platan Running Naked, sem kom út í Kanada, var tilnefnd til ECMA-verðlauna.

Í dag einbeitir Þór sér að frumsaminni tónlist og persónulegum sólóverkefnum. Sögur hjartans í Kaldalóni í Hörpu sameinar ný lög, frásagnir og reynslu hans af leikhúsi, tónlist og lífinu sjálfu.

Tónlist

Frumsamin tónlist á ensku er gefin út undir Thor Breidfjord, en íslensk verkefni og tónleikar birtast undir nafninu Þór Breiðfjörð.

Alþjóðlegu Spotify-síðuna finnurðu HÉR

Íslensku Spotify-síðuna finnurðu HÉR

Ensku alþjóðasíðuna finnurðu HÉR